Prentað þann 1. apríl 2025
638/2022
Reglugerð um (18.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1297 frá 4. ágúst 2021 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 viðvíkjandi perflúorókarboxýlsýru sem inniheldur 9 til 14 kolefnisatóm í keðjunni (C9-C14 PFCA), söltum hennar og skyldum efnum, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 336/2021 frá 10. desember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 17. febrúar 2022, bls. 736-740.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/876 frá 31. maí 2021 um reglur um beitingu reglugerðar (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar umsóknir um leyfi og endurskoðunarskýrslur varðandi notkun efna við framleiðslu á varahlutum í vörur á útleið og til viðgerða á hlutum og samsettum framleiðsluvörum, sem eru ekki framleidd lengur, og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 340/2008, sem vísað er til í tölulið 12zcb, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 337/2021 frá 10. desember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 17. febrúar 2022, bls. 741-748.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2045 frá 23. nóvember 2021 um breytingu á XIV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2022 frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 25. maí 2022, bls. 574-578.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1297 frá 4. ágúst 2021 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 viðvíkjandi perflúorókarboxýlsýru sem inniheldur 9 til 14 kolefnisatóm í keðjunni (C9-C14 PFCA), söltum hennar og skyldum efnum.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/876 frá 31. maí 2021 um reglur um beitingu reglugerðar (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar umsóknir um leyfi og endurskoðunarskýrslur varðandi notkun efna við framleiðslu á varahlutum í vörur á útleið og til viðgerða á hlutum og samsettum framleiðsluvörum, sem eru ekki framleidd lengur, og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 340/2008.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2045 frá 23. nóvember 2021 um breytingu á XIV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 30. maí 2022.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.