Prentað þann 3. jan. 2025
637/2004
Reglugerð um breytingu á reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að ljúka átaki til einsetningar grunnskólans, nr. 303/2003.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
a. Í stað ártalanna "2003–2005" kemur: 2003–2006.
b. Í stað orðanna "fyrstu tvö árin" kemur: fyrstu þrjú árin.
c. Í stað ártalsins "2005" kemur: 2006.
2. gr.
2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 13. júlí 2004.
Árni Magnússon.
Guðjón Bragason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.