Prentað þann 22. des. 2024
Breytingareglugerð
636/2024
Reglugerð um (17.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/707 frá 19. desember 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar hættuflokka og viðmiðanir fyrir flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 89/2024, þann 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 186-218.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/197 frá 19. október 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar samræmda flokkun og merkingu á tilteknum efnum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2024, þann 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 219-237.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
- Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/707 frá 19. desember 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar hættuflokka og viðmiðanir fyrir flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna.
- Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/197 frá 19. október 2023 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1272/2008 að því er varðar samræmda flokkun og merkingu á tilteknum efnum.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 28. maí 2024.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Stefán Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.