Fara beint í efnið

Prentað þann 1. sept. 2024

Breytingareglugerð

634/2024

Reglugerð um (22.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:

83) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/464 frá 3. mars 2023 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hann að tækniframförum, sem vísað er til í tölulið 12zza, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 315/2023, þann 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 300-313.
84) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2482 frá 13. nóvember 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efnið bis(2-etýlhexýl)þalat (DEHP) í lækningatæki, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 14/2024, þann 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 21. mars 2024, bls. 252-255.
85) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/923 frá 3. maí 2023 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar blý og efnasambönd þess í pólývínýlklóríði, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2024, þann 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 238-243.
86) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1464 frá 14. júlí 2023 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar formaldehýð og formaldehýðlosandi efni, sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2024, þann 26. apríl 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 41 frá 16. maí 2024, bls. 247-255.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/464 frá 3. mars 2023 um breytingu á viðaukanum við reglugerð (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni, í því skyni að laga hann að tækniframförum.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2482 frá 13. nóvember 2023 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar efnið bis(2-etýlhexýl)þalat (DEHP) í lækningatæki.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/923 frá 3. maí 2023 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar blý og efnasambönd þess í pólývínýlklóríði.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1464 frá 14. júlí 2023 um breytingu á XVII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 að því er varðar formaldehýð og formaldehýðlosandi efni.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga, nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 28. maí 2024.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.