Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 4. júlí 2019 – 13. okt. 2021 Sjá núgildandi

633/2019

Reglugerð um veiðar á beitukóngi í gildrur.

1. gr. Almennt.

Allar veiðar á beitukóngi í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu. Krókabátum sem fá leyfi til veiða á beitukóngi er heimilt að veiða með beitukóngsgildrum.
Leyfi til beitukóngsveiða skulu gefin út fyrir hvert fiskveiðiár. Ráðherra er heimilt að fela Fiskistofu að fella úr gildi öll leyfi til beitukóngsveiða sé talin ástæða til að takmarka veiðarnar eða endurskipuleggja stjórnun þeirra.
Veiðar á beitukóngi til manneldis eru einungis heimilar á svæðum sem hafa verið heilnæmiskönnuð af Matvælastofnun (MAST).
Með umsókn skal fylgja samningur um vinnslu á beitukóngi í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða. Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST

2. gr. Veiðisvæði.

Á Breiðafirði skiptist veiðisvæði beitukóngs með eftirfarandi hætti:
1. Suðursvæði, sem afmarkast af línu fyrir sunnan 65°15´N og vestan við 22°30´V.
2. Norðursvæði, sem afmarkast af línu fyrir norðan 65°15´N.
Ekki er heimilt í einni og sömu veiðiferð að veiða á báðum svæðum.

3. gr. Lágmarksstærð beitukóngs.

Ekki er heimilt að koma með að landi beitukóng undir 50 mm skelhæð.

4. gr. Merking veiðarfæra.

Gildrubaujur skulu vera á báðum endum gildrulínu og allar merktar með flaggi sem komið er fyrir efst á baujustönginni. Gildrur, niðurstöður, gildrubaujur og -belgir og baujuflögg skulu, með varanlegri merkingu, vera greinilega merktar umdæmisnúmeri eða skipaskrárnúmeri þess skips sem notar þær. Stafir á baujuflöggum og belgjum skulu vera stórir og skýrir.
Hverja gildrulögn skal merkja þannig að á miðju baujustangar á vestari enda hennar skal komið fyrir netahring (floti), sem hæglega má losa og færa milli bauja. Leggi skip net sín á svæði þar sem togveiðar eru heimilar, er skylt að auðkenna vestari enda gildrulagnar með hvítu blikkljósi.
Æskilegt er að radarspegill sé á bauju.

5. gr. Vitjun veiðarfæra.

Gildra skal vitjað með eðlilegum og reglubundnum hætti. Týni skip beitukóngsgildrum í sjó, ber skipstjóra að slæða þær upp. Takist það ekki skal hann tilkynna það Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu og skýra frá staðsetningu gildranna eins nákvæmlega og unnt er.

6. gr. Önnur veiðarfæri um borð.

Óheimilt er að hafa önnur veiðarfæri um borð en plóga og gildrur meðan á beitukóngsveiðum stendur. Þetta gildir einnig þegar gildrur eru lagðar eða þeirra er vitjað.

7. gr. Vigtun og skráning.

Við vigtun og skráningu á beitukóngi gilda ákvæði reglugerðar um vigtun og skráningu sjávarafla, með síðari breytingum. Skipstjóri skal gefa upp veiðisvæði, sbr. 2. gr., við vigtun afla á hafnarvog.

8. gr. Svipting veiðileyfis.

Fiskistofu er heimilt að svipta skip leyfi til beitukóngsveiða vegna brota á ákvæðum leyfisbréfa og ákvæðum laga og reglugerða, sem lúta að stjórn veiða og nýtingu nytjastofna. Missi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni fellur jafnframt úr gildi leyfi til beitukóngsveiða.

9. gr. Viðurlög.

Brot varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Með mál sem kunna að rísa út af brotum á ákvæðum reglugerðar þessarar og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út samkvæmt henni skal farið að hætti sakamála.

10. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin tekur þegar gildi og fellur þá úr gildi reglugerð nr. 1012/2013 um veiðar á beitukóngi í gildrur.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júlí 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.