Fara beint í efnið

Prentað þann 27. júlí 2024

Breytingareglugerð

624/2024

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1377/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/620 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar samþykki fyrir sjúkdómalausri stöðu og bólusetningarlausri stöðu tiltekinna aðildarríkja eða svæða eða hólfa þeirra að því er varðar tiltekna skráða sjúkdóma og samþykki fyrir útrýmingaráætlunum vegna þessara skráðu sjúkdóma (dýraheilbrigði).

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/620 frá 15. apríl 2021 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar samþykki fyrir sjúkdómalausri stöðu og bólusetningarlausri stöðu tiltekinna aðildarríkja eða svæða eða hólfa þeirra að því er varðar tiltekna skráða sjúkdóma og samþykki fyrir útrýmingaráætlun vegna þessara skráðu sjúkdóma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 231/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74, frá 18. nóvember 2021, bls. 1.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1008 frá 21. júní 2021 um breytingu á I. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/620 að því er varðar sjúkdómslausa stöðu Króatíu og svæðis í Portúgal með tilliti til sýkingar af völdum Brucella abortus, B. melitensis og B. suis í nautgripastofnum, um breytingu á VIII. viðauka við hana að því er varðar sjúkdómslausa stöðu Litáens (Lietuva) og tiltekinna svæða í Þýskalandi, á Ítalíu og í Portúgal með tilliti til sýkingar af völdum blátunguveiru (sermigerðir 124) og um breytingu á XIII. viðauka við hana að því er varðar sjúkdómslausa stöðu Danmerkur og Finnlands með tilliti til iðradreps. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 47/2022, frá 18. mars 2022, Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 36.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/214 frá 17. febrúar 2022 um breytingu á tilteknum viðaukum við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/620 að því er varðar samþykki fyrir eða afturköllun á sjúkdómalausri stöðu tiltekinna aðildarríkja eða svæða eða hólfa þeirra að því er varðar tiltekna skráða sjúkdóma og samþykki fyrir útrýmingaráætlunum vegna tiltekinna skráðra sjúkdóma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 202/2022, frá 8. júlí 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53, frá 11. ágúst 2022, bls. 108.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/150 frá 20. janúar 2023 um breytingu á tilteknum viðaukum við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/620 að því er varðar samþykki fyrir eða afturköllun á sjúkdómalausri stöðu tiltekinna aðildarríkja eða svæða eða hólfa þeirra að því er varðar tiltekna skráða sjúkdóma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 123/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 35, frá 25. apríl 2024, bls. 4.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990 um innflutning dýra, lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008 um fiskeldi.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008 um fiskeldi.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.