Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fyrri útgáfa

Prentað þann 4. apríl 2026

Reglugerð með breytingum síðast breytt 3. mars 2026
Sýnir breytingar gerðar 3. mars 2026 af rg.nr. 203/2026

619/2017

Reglugerð um samræmda afhendingu og miðlun upplýsinga um flutninga á sjó.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðarinnar er að greiða fyrir flutningum á sjó og draga úr stjórnsýslubyrði skipafélaga með því að gera rafræna afhendingu og miðlun upplýsinga að reglu og með því að einfalda upplýsingagjöf um flutninga á sjó.

2. gr. Gildissvið.

Ákvæði reglugerðarinnar gilda um afhendingarhátt og miðlun upplýsinga um flutninga á sjó að því er varðar skip sem koma til hafnar eða láta úr höfn á Íslandi.

3. gr. Afhendingarháttur upplýsinga.

Skipstjóra, rekstraraðila eða umboðsmanni útgerðar er skylt að afhenda vaktstöð siglinga upplýsingar sem veita ber vegna komu og brottfarar skipa samkvæmt ákvæðum laga og stjórnvaldsfyrirmæla þar að lútandi eins og kveðið er á um í viðauka við reglugerðina.

Upplýsingarnar skulu veittar í gegnum sameiginlega gagnagátt vaktstöðvar siglinga.

Upplýsingarnar skulu veittar eigi síðar en:

  1. Tuttugu og fjórum klukkustundum áður en skip leggst að höfn,
  2. þegar skipið leggur frá höfn ef siglingatíminn er undir tuttugu og fjórum klukkustundum, eða
  3. eins fljótt og upplýsingarnar liggja fyrir ef ekki er vitað hver viðkomuhöfnin er eða ef viðkomuhöfn er breytt á meðan á siglingu stendur.

4. gr. Innleiðing á EES-gerð.

Með reglugerð þessari eru innleidd ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2010/65/ESB frá 20. október 2010 um formsatriði við skýrslugjöf að því er varðar skip sem koma í og/eða láta úr höfn í aðildarríkjum og um niðurfellingu á tilskipun 2002/6/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 89/2013 frá 3. maí 2013, sem birt var í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61, 31. október 2013, bls. 62. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, 16. maí 2013, bls. 336-345.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar gerðir sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/204 frá 28. október 2022 um tækniforskriftir, staðla og verklagsreglur fyrir sameiginlega gátt fyrir siglingar í Evrópu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1239. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2024 frá 5. júlí 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 77 frá 17. október 2024, bls. 297-319.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/205 frá 7. nóvember 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1239 að því er varðar stofnun gagnasafns fyrir sameiginlega gátt fyrir siglingar í Evrópu og um breytingu á viðaukanum við hana. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2024 frá 12. júní 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 158-364.

 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2790 frá 14. desember 2023 um ákvörðun virkni- og tækniforskrifta fyrir viðmótseiningu skýrslugjafar fyrir landsbundnu sameiginlegu gáttirnar fyrir siglingar. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 313/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 658-667.

5. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. og 3. mgr. 16. gr. c og 1. og 2. mgr. 17. gr. laga um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, og öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.