Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 6. júlí 2016 – 25. jan. 2018 Sjá núgildandi

619/2016

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1095 frá 5. maí 2015, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun kæli- eða frystiskápa, sem notaðir eru í atvinnuskyni, blásturskæliskápa og blástursfrystiskápa, þjöppusamstæðna með eimsvala og vökvakæla fyrir vinnslukerfi.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 6o og 26p í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 52/2016, frá 18. mars 2016, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2015/1095, frá 5. maí 2015, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun kæli- eða frystiskápa, sem notaðir eru í atvinnuskyni, blásturskæliskápa og blástursfrystiskápa, þjöppusamstæðna með eimsvala og vökvakæla fyrir vinnslukerfi.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1095 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27/2016, 12. maí 2016, bls. 1426.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. júní 2016.

Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.