Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 25. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 27. júní 2008 – 1. des. 2021 Sjá núgildandi

618/2008

Reglugerð um reykbragðefni sem eru notuð eða eru ætluð til notkunar í eða á matvælum.

1. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2065/2003, frá 10. nóvember 2003, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 58/2005, frá 31. apríl 2005 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 627/2006, frá 21. apríl 2006, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 147/2006, frá 10. september 2006, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2065/2003 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 627/2006 eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákvarðað samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.

4. gr.

Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum um matvæli, nr. 93/1995.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 10. júní 2008.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.