Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 6. júlí 2016 – 21. feb. 2018 Sjá núgildandi

617/2016

Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1186 frá 24. apríl 2015, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar staðbundinna rýmishitara.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4p og 11p í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 309/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1186 frá 24. apríl 2015 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar staðbundinna rýmishitara.

2. gr.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1186 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27/2016, 12. maí 2016, bls. 665.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. júní 2016.

Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.