Prentað þann 22. des. 2024
614/2022
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 968/2015, um greiðsluþátttöku ríkisins í hjálpartækjum sem Heyrnar- og talmeinastöð útvegar.
1. gr.
Í stað "50.000 kr." í 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 60.000 kr.
2. gr.
Í stað "50.000 kr." í 3. tölul. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 60.000 kr.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 5. gr., 3. mgr. 6. gr. og 8. gr. laga um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007, öðlast gildi 1. júní 2022.
Heilbrigðisráðuneytinu, 23. maí 2022.
Willum Þór Þórsson.
Guðlaug Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.