Prentað þann 5. des. 2024
614/2021
Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.
1. gr.
Á eftir s-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2174 frá 19. október 2020 um breytingu á I. viðauka C, III. viðauka, III. viðauka A, IV., V., VII. og VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs, sem vísað er til í tölul. 32c í XX. kafla viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 244/2020, þann 30. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 21. janúar 2021, bls. 72-80.
2. gr. Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2174 frá 19. október 2020 um breytingu á I. viðauka C, III. viðauka, III. viðauka A, IV., V., VII. og VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 43. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. maí 2021.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.