Prentað þann 24. nóv. 2024
614/2014
Reglugerð um útnefningu skipaafdrepa á Íslandi.
1. gr.
Eftirfarandi hafnir hafa verið útnefndar sem skipaafdrep innan hafnar (neyðarhafnir):
- Helguvíkurhöfn, sbr. hafnarreglugerð fyrir Reykjaneshöfn nr. 982/2005.
- Hafnarfjarðarhöfn, sbr. hafnarreglugerð fyrir Hafnarfjarðarhöfn nr. 423/2012.
- Ísafjarðarhöfn, sbr. hafnarreglugerð fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar nr. 1190/2005.
- Akureyri/Krossaneshöfn, sbr. hafnarreglugerð fyrir Hafnasamlag Norðurlands bs. nr. 287/2005.
- Reyðarfjarðarhöfn, sbr. hafnarreglugerð fyrir hafnir Fjarðabyggðar nr. 978/2009.
- Vestmannaeyjahöfn, sbr. hafnarreglugerð fyrir Vestmannaeyjahöfn nr. 1030/2012.
2. gr.
Eftirfarandi staðir hafa verið útnefndir sem skipaafdrep utan hafnar:
- Hvalfjörður, milli 21°34'V og 21°43'V, viðmiðunarpunktur: 63°23'N 21°40'V.
- Dýrafjörður, viðmiðunarpunktur: 65°57'N 23°18'V.
- Ísafjarðardjúp, viðmiðunarpunktur: 66°15'N 23°18'V.
- Eyjafjörður, vestan við Hrísey, viðmiðunarpunktur: 66°02'N 18°28'V.
- Reyðarfjörður, viðmiðunarpunktur: 64°57,5'N 13°40'V.
- Heimaey, norðan við Eiðið, viðmiðunarpunktur: 63°28'N 20°17'V.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 1. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 16. júní 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.