Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

611/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 344/2016 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 811/2013 frá 18. febrúar 2013, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar hitara fyrir rými, sambyggðra hitara, pakka með hitara fyrir rými, hitastýringu og búnaði sem nýtir sólarorku og pakka með sambyggðum hitara, hitastýringu og búnaði sem nýtir sólarorku.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4c, 4e, 4i, 4j, 4k, 4l, 4m, 4n, 4s, 4t, 11c, 11e, 11i, 11j, 11k, 11l, 11m, 11n, 11s og 11t í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 24/2016, frá 5. febrúar 2016, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 518/2014 frá 5. mars 2014 um breytingu á framseldum reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2010, (ESB) nr. 1060/2010, (ESB) nr. 1061/2010, (ESB) nr. 1062/2010, (ESB) nr. 626/2011, (ESB) nr. 392/2012, (ESB) nr. 874/2012, (ESB) nr. 665/2013, (ESB) nr. 811/2013 og (ESB) nr. 812/2013 að því er varðar merkingu orkutengdra vara á Netinu.

2. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (ESB) nr. 518/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 253.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. júní 2016.

Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.