Prentað þann 21. nóv. 2024
601/2020
Reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
1. gr.
Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2., 3. og 4. gr.
2. gr.
Gjald fyrir einn sem gistir eina nótt á tjaldstæði á þjónustusvæði A í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 1.500 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 900 | |
3. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | kr. | 1.300 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir einn sem gistir eina nótt á tjaldstæði á þjónustusvæði B í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 1.250 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 700 | |
3. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | kr. | 1.000 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir hverja gistieiningu í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl á þjónustusvæðum A og B er 250 kr. á nótt.
Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 4.500 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 2.300 | |
3. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | kr. | 3.500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 3.500 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 1.500 | |
3. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | kr. | 2.750 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.
Gjald fyrir sumarstæði: Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | 1 mánuður | kr. | 26.000 | |
2. | 1 mánuður með rafmagni | kr. | 34.000 | |
3. | 2 mánuðir | kr. | 52.000 | |
4. | 2 mánuðir með rafmagni | kr. | 68.000 | |
5. | 3 mánuðir | kr. | 78.000 | |
6. | 3 mánuðir með rafmagni | kr. | 102.000 |
3. gr.
Gjald fyrir aðra þjónustu:
1. | Sturtugjald, eitt skipti | kr. | 300 | |
2. | Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring | kr. | 1.000 | |
3. | Afnot af þvottavél, eitt skipti | kr. | 500 | |
4. | Afnot af þurrkara, eitt skipti | kr. | 500 | |
5. | Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) | kr. | 500 | |
6. | Útseld vinna sérfræðinga pr. klst. | kr. | 16.000 | |
7. | Útseld vinna landvarða pr. klst. | kr. | 12.000 | |
8. | Útgáfa leyfa, stór verkefni | kr. | 50.000 | |
9. | Útgáfa leyfa, lítil verkefni | kr. | 25.000 | |
10. | Aðgangur að íshellum, pr. mann | kr. | 1.000 | |
Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að íshellum er gjaldfrjáls.
Sturtugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi á þjónustusvæði A, sbr. 2. gr.
4. gr.
Svæðisgjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 - 24.00):
1. | Flokkur A - Fólksbifreið, 5 manna og færri | kr. | 750 | |
2. | Flokkur B - Fólksbifreið, 6-9 manna | kr. | 1.000 | |
3. | Flokkur C - Rúta, 10-18 manna | kr. | 1.800 | |
4. | Flokkur D - Rúta, 19-32 manna | kr. | 3.500 | |
5. | Flokkur E - Rúta, 33-64 manna | kr. | 6.400 | |
6. | Flokkur F - Rúta, 65 manna og fleiri | kr. | 9.000 | |
7. | Bifhjól | kr. | 300 |
Svæðisgjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 420/2019 um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 16. júní 2020.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Björgvin Valdimarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.