Prentað þann 5. des. 2025
598/2025
Reglugerð um afnám B-faggildingar.
I. KAFLI Breyting á reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit nr. 605/2010.
1. gr.
Orðin "og annarra sem hafa B-faggildingu" í 1. mgr. 45. gr. reglugerðarinnar falla brott.
II. KAFLI Breyting á reglugerð um prófun á ökuritum nr. 572/1995.
2. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Starfsleyfi sem þegar hafa verið útgefin á grundvelli B-faggildingar halda gildi sínu til 31. desember 2025 þrátt fyrir að B-faggilding hafi verið afturkölluð af faggildingarsviði Hugverkastofu.
III. KAFLI Breyting á reglugerð um frágang á hraðatakmarkara í bifreið nr. 71/1998.
3. gr.
Orðin "B-faggildingu til að prófa ökurita og" í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar falla brott.
4. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Starfsleyfi sem þegar hafa verið útgefin á grundvelli B-faggildingar halda gildi sínu til 31. desember 2025 þrátt fyrir að B-faggilding hafi verið afturkölluð af faggildingarsviði Hugverkastofu.
IV. KAFLI Gildistaka.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 54., 69. og 74. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 9. maí 2025.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 2. júní 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.