Prentað þann 24. júlí 2026
596/2026
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 270/2024 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/870 frá 28. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 að því er varðar tilvísanir í ákvæði Chicago-samningsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 701-702.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 20. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 15. maí 2026.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 29. maí 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.