Prentað þann 16. mars 2025
594/2020
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1166/2013 um fjárfestingarheimildir verðbréfasjóða, innlausn, markaðssetningu erlendra sjóða og upplýsingagjöf.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Orðin "og fjárfestingarsjóða" í 1. mgr. falla brott.
- Orðin "fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði" í 1. mgr. falla brott.
- 2. mgr. fellur brott.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
- Orðin "eða fjárfestingarsjóður" í 1. tölul. falla brott.
- Orðin "eða fjárfestingarsjóðs" í 2. og 3. tölul. falla brott.
- Orðin "og fjárfestingarsjóðir" í 3. tölul. falla brott.
3. gr.
Orðin "eða fjárfestingarsjóðs" í 1. tölul. 3. gr. reglugerðarinnar falla brott.
4. gr.
Orðið "fjárfestingarsjóðs" í 1. og 2. mgr. 4. gr., 1. mgr. 5. gr. og 1. og 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
5. gr.
Orðið "fjárfestingarsjóður" í 1. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. reglugerðarinnar:
- Orðið "fjárfestingarsjóði" sem kemur fyrir tvisvar sinnum í 1. mgr. fellur brott.
- Orðin "eða fjárfestingarsjóður" í 2. mgr. falla brott.
- Orðin "og 4. mgr. 59. gr." í 2. mgr. falla brott.
7. gr.
Orðið "eða öðrum sjóði um sameiginlega fjárfestingu" í 23. gr. reglugerðarinnar falla brott.
8. gr.
Orðið "fjárfestingarsjóð" í 1. mgr. 24. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. reglugerðarinnar:
- Orðið "fjárfestingarsjóð" í 1. mgr. fellur brott.
- Orðin "eða fjárfestingarsjóð" í fyrirsögn A-liðar 2. mgr. falla brott.
- Orðin "og fjárfestingarsjóð" í 6. tölul. D-liðar 2. mgr. falla brott.
- Orðin "og fjárfestingarsjóðs" í 3. mgr. falla brott.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 28. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna "18. gr., 49. gr., 52. gr. og 65. gr." í 1. málsl. kemur: 49. gr., 52. gr. og 64. gr.
- Orðin "fjárfestingarsjóði og fagfjárfestingarsjóði" í 1. málsl. falla brott.
11. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 49. gr., 52. gr. og 64. gr. laga nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 3. júní 2020.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Elísabet Júlíusdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.