Prentað þann 7. apríl 2025
591/2023
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 555/2020 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 1. gr. reglugerðarinnar:
-
Á eftir orðunum "bls. 437-531" í a-lið 1. mgr. bætist: með breytingum samkvæmt eftirfarandi gerð:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1255 um breytingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 231/2013 að því er varðar áhættu tengda sjálfbærni og sjálfbærniþætti sem rekstraraðilar sérhæfðra sjóða skulu taka tillit til. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 37 frá 11. maí 2023, bls. 38-40.
- Ný málsgrein bætist við, svohljóðandi: Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2022 frá 29. apríl 2022 um upptöku reglugerðar skv. 1. tölul. a-liðar 1. mgr. í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 90.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 19. og 22.-23. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. júní 2023.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Elísabet Júlíusdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.