Prentað þann 24. ágúst 2026
586/2026
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1103 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun staðbundinna rýmishitara og aðskilins tilheyrandi stýribúnaðar og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1188.
1. gr.
Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 6zc í kafla IV í II. viðauka og lið 26zd í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025 frá 5. desember 2025, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1103 frá 18. apríl 2024 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun staðbundinna rýmishitara og aðskilins tilheyrandi stýribúnaðar og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1188.
2. gr.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2025 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 16. apríl 2026.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1103 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 389-431.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur brott reglugerð 615/2016 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1188 frá 28. apríl 2015, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun staðbundinna rýmishitara.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 15. maí 2026.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Jón Ásgeirsson.
B deild - Útgáfudagur: 29. maí 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.