Prentað þann 24. júlí 2026
Breytingareglugerð
585/2025
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.
1. gr.
Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:
| þ. | Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2108 frá 29. júlí 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar tilteknar áríðandi flugverndarráðstafanir varðandi búnað fyrir öryggisskimun vökva, úðaefna og gels, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2025 frá 7. febrúar 2025. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 695-698. |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 21. maí 2025.
F. h. r.
Nína Guðríður Sigurðardóttir.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.