Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 25. okt. 2016

578/2011

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 244/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun óstefnuvirkra ljósapera til heimilisnota.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 30 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011, frá 11. febrúar 2011, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 244 frá 18. mars 2009 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/32/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun óstefnuvirkra ljósapera til heimilisnota.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 6g, 10, 26h og 33 í IV. kafla í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 313/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1428 frá 25. ágúst 2015 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 244/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun óstefnuvirkra ljósapera til heimilisnota og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 245/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun flúrpera án innbyggðrar straumfestu, háþrýstra úrhleðslupera og varðandi straumfestur og lampa fyrir slíkar ljósaperur og um niðurfellingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/55/EB og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1194/2012 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun stefnuvirkra ljósapera, ljósdíóðupera og tengds búnaðar.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 244/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20/2011, 7. apríl 2011, bls. 179.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 19/2011, 7. apríl 2011, bls. 1.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1428 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 105.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.