Prentað þann 22. des. 2024
570/2018
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 536/2001 um neysluvatn.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka I:
a) | Viðauki I, meginmál, orðast svo: Eftirlitsáætlanir vegna reglubundins eftirlits skulu staðfesta að ráðstafanir sem eru fyrir hendi til að halda áhættu fyrir heilbrigði manna í skefjum alla vatnsaðfangakeðjuna, virki á skilvirkan hátt, og að vatnið á þeim stað þar sem það er tiltækt notendum sé heilnæmt og hreint. Eftirlitsáætlanir skulu veita upplýsingar um gæði neysluvatnsins til að sýna fram á að kröfur reglugerðar þessarar séu uppfylltar. Vöktunaráætlanir skulu vera í samræmi við töflu 6. Rannsóknaþættir eru flokkaðir í A, B og C flokka eftir því til hvaða aðgerða ber að grípa ef gildi mælast hærri en hámarksgildi viðkomandi þátta, sbr. ákvæði 14. gr. |
b) | Tafla 7 í viðauka I fellur brott. |
2. gr.
Viðauki II breytist og er birtur sem viðauki við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin er til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1787 frá 6. október 2015 um breytingu á II. og III. viðauka við tilskipun ráðsins 98/83/EB um gæði neysluvatns, sem felld var inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2016, frá 8. júlí 2016. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. maí 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.