Prentað þann 24. júlí 2026
567/2025
Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 205/2023 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2867 frá 2. september 2024 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar framsetningu á kennimerki Evrópusambandsins fyrir lífræna framleiðslu. Reglugerðin er innleidd á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 44.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og II. kafla laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995 og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. maí 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Svava Pétursdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.