Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 22. nóv. 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 11. okt. 2014

564/2014

Reglugerð um lok úrgangsfasa.

1. gr. Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Eftirfarandi EES-gerðir skulu öðlast gildi hér á landi:

  1. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 333/2011 frá 31. mars 2011 um viðmiðanir til að ákvarða hvenær tilteknar gerðir brotajárns hætta að vera úrgangur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/EB, sem vísað er til í tölulið 32ffa, V. kafla, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2012 frá 13. júlí 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 27. september 2012 - 2012/EES/54/95 bls. 1272-1281.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1179/2012 frá 10. desember 2012 um viðmiðanir til að ákvarða hvenær glerbrot hætta að vera úrgangur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/EB, sem vísað er til í tölulið 32ffb, V. kafla, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 174/2013 frá 8. október 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56 frá 10. október 2013 - 2013/EES/56/53 bls. 795-800.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 715/2013 frá 25. júlí 2013 um viðmiðanir til að ákvarða hvenær koparrusl hættir að vera úrgangur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/ESB, sem vísað er til í tölulið 32ffc, V. kafla, XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 142/2014 frá 27. júní 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014 - 2014/EES/54/61, bls. 592-598.

2. gr. Innleiðing tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:

  1. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 333/2011 frá 31. mars 2011 um viðmiðanir til að ákvarða hvenær tilteknar gerðir brotajárns hætta að vera úrgangur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/EB.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1179/2012 frá 10. desember 2012 um viðmiðanir til að ákvarða hvenær glerbrot hætta að vera úrgangur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/EB.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 715/2013 frá 25. júlí 2013 um viðmiðanir til að ákvarða hvenær koparrusl hættir að vera úrgangur samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/98/ESB.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í i-lið 43. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.