Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. maí 2021

540/2014

Reglugerð um innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 421/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Bandalagsins með tilliti til framkvæmdar á alþjóðasamningi um beitingu sameiginlegrar markaðstengdrar heildarráðstöfunar um alþjóðlega losun frá flugi frá árinu 2020.

1. gr.

Eftirfarandi EES-gerð skal öðlast gildi hér á landi:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 421/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Bandalagsins með tilliti til framkvæmdar á alþjóðasamningi um beitingu sameiginlegrar markaðstengdrar heildarráðstöfunar um alþjóðlega losun frá flugi frá árinu 2020, sem vísað er til í tölulið 21al, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2014, frá 30. apríl 2014, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í fylgiskjali.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 421/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Bandalagsins með tilliti til framkvæmdar á alþjóðasamningi um beitingu sameiginlegrar markaðstengdrar heildarráðstöfunar um alþjóðlega losun frá flugi frá árinu 2020, sem vísað er til í tölulið 21al, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2014, frá 30. apríl 2014.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 70/2012 um loftslagsmál, sbr. 1. gr. laga um breytingu á þeim lögum nr. 52/2014. Jafnframt fellur brott reglugerð sama efnis nr. 523/2014.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 6. júní 2014.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Danfríður Skarphéðinsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.