Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 5. des. 2025

Breytingareglugerð

528/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.

1. gr.

Við 20. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr stafliður, x-liður, svohljóðandi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2381 frá 29. september 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/480 um sameiginlegar reglur varðandi samtengingu rafrænna landsskráa yfir flutningafyrirtæki á vegum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 32/2025 frá 7. febrúar 2025, birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 680-694.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 32. gr. og 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 19. maí 2025.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Nína Guðríður Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.