Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 5. des. 2025

Stofnreglugerð

527/2025

Reglugerð um gildistöku á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2048 frá 4. júlí 2023 um leiðréttingu á framseldum reglugerðum (ESB) nr. 626/2011, (ESB) 2019/2015, (ESB) 2019/2016 og (ESB) 2019/2018 að því er varðar kröfur um orkumerkingar loftjöfnunarsamstæðna, ljósgjafa, kælitækja og kælitækja sem eru notuð við beina sölu.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 11m, 11x, 11y og 11za í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 275/2024 frá 6. desember 2024, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2048 frá 4. júlí 2023 um leiðréttingu á framseldum reglugerðum (ESB) nr. 626/2011, (ESB) 2019/2015, (ESB) 2019/2016 og (ESB) 2019/2018 að því er varðar kröfur um orkumerkingar loftjöfnunarsamstæðna, ljósgjafa, kælitækja og kælitækja sem eru notuð við beina sölu.

2. gr.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2048 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10/2025, 20. febrúar 2025, bls. 811-830.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 275/2024 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25/2024, 24. apríl 2024, bls. 48.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 6. maí 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.