Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 5. des. 2025

Stofnreglugerð

526/2025

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1784 frá 1. október 2019 um kröfur varðandi visthönnun suðubúnaðar samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 6y í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2023 frá 13. júní 2023, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1784 frá 1. október 2019 um kröfur varðandi visthönnun suðubúnaðar samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1784 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63/2023, 7. september 2023, bls. 338-352.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2023 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 87/2023, 30. nóvember 2023, bls. 24.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 6. maí 2025.

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.