Prentað þann 23. nóv. 2024
Breytingareglugerð
523/2020
Reglugerð um (17.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.
1. gr.
Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1257 frá 23. júlí 2019 um að leiðrétta búlgörsku tungumálaútgáfuna af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16 frá 12. mars 2020, bls. 430.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1857 frá 6. nóvember 2019 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16 frá 12. mars 2020, bls. 431-434.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1858 frá 6. nóvember 2019 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16 frá 12. mars 2020, bls. 435-437.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1966 frá 27. nóvember 2019 um breytingu og leiðréttingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2020 frá 20. mars 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 125-136.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1257 frá 23. júlí 2019 um að leiðrétta búlgörsku tungumálaútgáfuna af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1857 frá 6. nóvember 2019 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1858 frá 6. nóvember 2019 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1966 frá 27. nóvember 2019 um breytingu og leiðréttingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 26. maí 2020.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.