Prentað þann 16. mars 2025
522/2018
Reglugerð um innleiðingu reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1419/2006 frá 25. september 2006 um niðurfellingu reglugerðar (EBE) nr. 4056/86 sem setur nákvæmar reglur um beitingu 85. og 86. gr. sáttmálans gagnvart flutningum á sjó og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1/2003 að því er varðar rýmkun á gildissviði hennar svo að hún taki til gestaflutninga og alþjóðlegrar þjónustu með leiguskip.
1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 153/2006, frá 8. desember 2006, gildir eftirtalin ESB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1419/2006 frá 25. september 2006 um niðurfellingu reglugerðar (EBE) nr. 4056/86 sem setur nákvæmar reglur um beitingu 85. og 86. gr. sáttmálans gagnvart flutningum á sjó og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1/2003 að því er varðar rýmkun á gildissviði hennar svo að hún taki til gestaflutninga og alþjóðlegrar þjónustu með leiguskip.
2. gr.
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1419/2006 frá 25. september 2006, er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 78, frá 18. desember 2008, bls. 110-112.
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1/2003 hefur áður verið birt sem fylgiskjal við reglugerð nr. 652/2005 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2005, bls. 1419-1444.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga, nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.
Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 817/2006, um innleiðingu reglugerðar ráðsins nr. 4056/86 frá 22. desember 1986 sem setur nákvæmar reglur um beitingu 85. og 86. gr. Rómarsáttmálans gagnvart flutningum á sjó.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. apríl 2018.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Heimir Skarphéðinsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.