Prentað þann 16. mars 2025
521/2018
Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 622/2008 frá 30. júní 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 773/2004, að því er varðar sáttameðferð í málum sem tengjast einokunarhringum.
1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2009, frá 22. október 2009, gildir eftirtalin ESB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 622/2008 frá 30. júní 2008, um breytingu á reglugerð (EB) nr. 773/2004, að því er varðar sáttameðferð í málum sem tengjast einokunarhringum.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 622/2008, frá 30. júní 2008, er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 5. febrúar 2015, bls. 937-939.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 773/2004, frá 7. apríl 2004, hefur áður verið birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 653/2005 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2005, bls. 1444-1451.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga, nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. apríl 2018.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Heimir Skarphéðinsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.