Prentað þann 23. nóv. 2024
519/2002
Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna.
1. gr.
Á eftir 1. mgr. 5. gr. kemur ný málsgrein er orðast svo:
Heimilt er að meta til hækkunar greiðslna þegar um er að ræða þunga umönnun framfæranda vegna fatlaðra og langveikra barna í umönnunarflokkum 1, 2 og 3 hér að neðan.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. gr., sbr. 13. gr., laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi þegar í stað.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu 8 . júlí 2002.
Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.