Prentað þann 16. mars 2025
518/2018
Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 802/2004 frá 7. apríl 2004 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 139/2004 um eftirlit með samfylkingum fyrirtækja (ásamt leiðréttingum).
1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2009, frá 22. október 2009, gildir eftirtalin ESB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 802/2004 frá 7. apríl 2004, um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 139/2004, um eftirlit með samfylkingingum fyrirtækja ásamt leiðréttingum sem birtust í Stjórnartíðindum. ESB L 172, 6.5.2004.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 802/2004 frá 7. apríl 2004 hefur verið breytt með eftirfarandi reglugerðum sem einnig gilda hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1792/2006 frá 23. október 2006, um aðlögun tiltekinna reglugerða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 132/2007 frá 26. október 2007, sbr. reglugerð nr. 777/2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 32, frá 17. júní 2010, bls. 48.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1033/2008, frá 20. október 2008, um breytingu á reglugerð (EB) nr. 802/2004, um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 139/2004, um eftirlit með samfylkingum fyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 132/2007 frá 26. október 2007. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 927-936.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1269/2013, frá 5. desember 2013, um breytingu á reglugerð (EB) nr. 802/2004, um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 139/2004, um eftirlit með samfylkingum fyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2014 frá 27. nóvember 2014, sbr. reglugerð nr. 623/2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti Stjórnartíðinda Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 1165-1200.
3. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 802/2004, um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 139/2004, er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 5. febrúar 2015, bls. 888-926.
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 139/2004, um eftirlit með samfylkingum fyrirtækja, hefur áður verið birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 654/2005 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2005, bls. 1452-1474.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga, nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. apríl 2018.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Heimir Skarphéðinsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.