Prentað þann 19. des. 2024
516/2017
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sálfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi nr. 1130/2012.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða:
1. mgr. orðast svo:
Um þá sem ljúka framhaldsnámi, skv. 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. fyrir 1. júlí 2018, gildir ekki ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. og 30. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 6. júní 2017.
Óttarr Proppé
heilbrigðisráðherra.
Margrét Björnsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.