Prentað þann 22. des. 2024
513/2019
Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, 76., 77. og 78. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/721 frá 16. maí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 til að flokka efnið svínaprólaktín með tilliti til hámarksgildis leifa. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2019, frá 29. mars 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 18. apríl 2019, bls. 373.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/772 frá 16. maí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 til að flokka efnið eprínómektín með tilliti til hámarksgildis leifa. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2019, frá 29. mars 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 18. apríl 2019, bls. 376.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1076 frá 30. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 til að flokka efnið ísóflúran með tilliti til hámarksgildis leifa. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2019, frá 29. mars 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 18. apríl 2019, bls. 539.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. maí 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.