Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 25. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 28. maí 2020 – 16. jan. 2021 Sjá lokaútgáfu

509/2020

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/626 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Evrópusambandsins og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/759 að því er varðar þessar skrár.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum, sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/626 frá 5. mars 2019 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Evrópusambandsins og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/759 að því er varðar þessar skrár. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2020, frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16, frá 12. mars 2020, bls. 239.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1981 frá 28. nóvember 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/626 að því er varðar skrár yfir þriðju lönd og svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn snigla, gelatín og kollagen og skordýr, sem eru ætluð til manneldis, til Evrópusambandsins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 5/2020, frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 23. apríl 2020, bls. 604.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi en ákvæði 7. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/626 er varða sendingar af görnum, sem ætlaðar eru til manneldis taka gildi frá og með 21. apríl 2021.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.