Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

506/2020

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1873 um málsmeðferðarreglur á landamæraeftirlitsstöðvum vegna samræmdrar framkvæmdar lögbærra yfirvalda á auknu opinberu eftirliti með afurðum úr dýraríkinu, kímefnum, aukaafurðum úr dýrum og samsettum afurðum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2020 frá 7. febrúar 2020, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1873 frá 7. nóvember 2019 um málsmeðferðarreglur á landamæraeftirlitsstöðvum vegna samræmdrar framkvæmdar lögbærra yfirvalda á auknu opinberu eftirliti með afurðum úr dýraríkinu, kímefnum, aukaafurðum úr dýrum og samsettum afurðum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 23. apríl 2020, bls. 599.

2. gr.

Matvælastofnun fer með framkvæmd þessarar reglugerðar.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.