Prentað þann 25. nóv. 2024
502/2019
Reglugerð um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.
1. gr.
Við 26. málsl. 3. tölul. viðauka 3 bætast orðin: og Reiseausweis als Passersatz. Ef ferðaskilríkið er án ljósmyndar af handhafa er áskilið að útrunnu vegabréfi eða Personalausweis verði jafnframt framvísað.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í ákvæðum laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og öðlast hún þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 17. maí 2019.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Haukur Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.