Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 4. maí 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 29. maí 2013 – 31. okt. 2013 Sjá núgildandi

496/2013

Reglugerð um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingar og takmarkanir að því er varðar efni („REACH“).

1. gr. Prófunaraðferðir.

Í reglugerð þessari er kveðið á um þær prófunaraðferðir sem skal beitt í þeim tilgangi að ákvarða eðlisefnafræðilega eiginleika, eiturhrif og visteiturhrif efna samkvæmt reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingar og takmarkanir að því er varðar efni ("REACH"). Prófunaraðferðirnar er að finna í þeim gerðum sem vísað er til í 2. gr.

2. gr. Innleiðing EES-gerða.

Eftirfarandi gerðir sem vísað er til í XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 440/2008 frá 30. maí 2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)) sem vísað er til í tölulið 12zza í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2012 frá 10. febrúar 2012. Reglugerðin er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal 1 við auglýsingu nr. 1/2013, með heimild í 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005 um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 761/2009 frá 23. júlí 2009 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni í því skyni að laga hana að tækniframförum (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zza. í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2012 frá 10. febrúar 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 27. september 2012, bls. 136-229.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1152/2010 frá 8. desember 2010 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 440/2008 þar sem mælt er fyrir um prófunaraðferðir samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)) í því skyni að laga hana að tækniframförum, sem vísað er til í tölulið 12zza í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2012 frá 10. febrúar 2012. Reglugerðin er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal 2 við auglýsingu nr. 1/2013, með heimild í 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005 um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í a-lið 1. tölul., d-lið 2. tölul. og 5. tölul. 11. gr., sbr. 22. gr. og 31. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 18. apríl 2013.

Svandís Svavarsdóttir.

Stefán Thors.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.