Prentað þann 19. maí 2024
494/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð um rafrænar þinglýsingar, nr. 360/2019.
1. gr.
1. tölul. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Aðilar er sinna eftirlitsskyldri starfsemi á grundvelli 1. mgr. 2. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 5. mgr. 5. gr. þinglýsingalaga, nr. 39/1978, öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 8. apríl 2024.
Guðrún Hafsteinsdóttir.
Haukur Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.