Prentað þann 28. des. 2024
Breytingareglugerð
491/2020
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.
1. gr.
Við 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1583 frá 25. september 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 um ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd að því er varðar ráðstafanir vegna öryggis á netinu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 44 frá 20. mars 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 202.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, öðlast gildi 31. desember 2020.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. maí 2020.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.