Prentað þann 26. des. 2024
485/2013
Reglugerð um framsal ráðherra á valdi sínu til að veita undanþágu frá innköllunarskyldu skv. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 2. mgr. 36. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.
1. gr.
Með reglugerð þessari framselur ráðherra vald sitt til að veita undanþágu frá innköllunarskyldu skv. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 2. mgr. 36. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi 1. júní 2013.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. maí 2013.
F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Valgerður Rún Benediktsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.