Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

479/2016

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 187/2015 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 9. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1760 frá 1. október 2015 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að taka bragðefnið p-menta-1,8-díen-7-al af skrá Sambandsins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2016 frá 30. apríl 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27, frá 12. maí 2016, bls. 767.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. maí 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.