Prentað þann 7. apríl 2025
478/2022
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu.
1. gr.
Eftir 1. málsl. e-liðar 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur:
Í þeim tilvikum sem hjálpartæki eru greidd að hluta af Sjúkratryggingum Íslands ber viðkomandi öldrunarstofnun að greiða hluta sjúkratryggðs.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 5. apríl 2022.
Willum Þór Þórsson.
Guðlaug Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.