Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 23. sept. 2021 – 1. des. 2021 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 23. sept. 2021 af rg.nr. 1059/2021

462/2021

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 um smitandi dýrasjúkdóma (dýraheilbrigði).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 frá 9. mars 2016 um smitandi dýrasjúkdóma og um breytingu og niðurfellingu á tilteknum gerðum á sviði dýraheilbrigðis ("lög um dýraheilbrigði"). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 164.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1629 frá 25. júlí 2018 um breytingu á skránni yfir sjúkdóma sem sett var fram í II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 um smitandi dýrasjúkdóma og um breytingu og niðurfellingu á tilteknum gerðum á sviði dýraheilbrigðis ("lög um dýraheilbrigði"). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 372.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/689 frá 17. desember 2019 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar reglur um eftirlit, útrýmingaráætlanir og sjúkdómalausa stöðu með tilliti til tiltekinna skráðra og nýtilkominna sjúkdóma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 15. apríl 2021, bls. 1.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/691 frá 30. janúar 2020 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar reglur um lagareldisstöðvar og flutningsaðila fyrir lagardýr. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 531.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/990 frá 28. apríl 2020 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar dýraheilbrigðiskröfur og vottunarkröfur vegna tilflutninga á lagardýrum og lagardýraafurðum innan Sambandsins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 565.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2154 frá 14. október 2020 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar dýraheilbrigðiskröfur, vottunarkröfur og kröfur um tilkynningar vegna flutninga á landdýraafurðum innan Sambandsins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 94/2021, frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 15. apríl 2021, bls. 155.
  7.  Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/687 frá 17. desember 2019 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar reglur um forvarnir og varnir gegn tilteknum skráðum sjúkdómum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 455.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2020 og nr. 4/2021.

2. gr.

Reglugerð þessi fjallar um heilbrigði dýra og gildir um öll stig framleiðslu, vinnslu, dreifingu og innflutning á afurðum úr dýraríkinu og afurðum úr þeim sem ætlaðar eru til neyslu, merkingar búfjár, rekjanleika afurða og tilkynningaskylda sjúkdóma með þeim takmörkunum sem leiðir af I. kafla I. viðauka EES-samningsins, og lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi.

4. gr.

Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, laga nr. 93/1995, um matvæli, laga nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, laga nr. 71/2008, um fiskeldi og laga nr. 38/2013, um búfjárhald.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi og lögum nr. 38/2013, um búfjárhald öll með síðari breytingum.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi og á sama tíma falla brott reglugerðir nr. 1254/2008, nr. 346/2012 og nr. 522/2012.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.