Fara beint í efnið

Prentað þann 27. sept. 2024

Breytingareglugerð

454/2021

Reglugerð um (17.) breytingu á reglugerð nr. 41/2012 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 60. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/772 frá 11. júní 2020 um breytingu á I., VII. og VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 að því er varðar ráðstafanir til að útrýma smitandi svampheilakvilla í geitum og búfjárkynjum í útrýmingarhættu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 121.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. apríl 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.