Prentað þann 22. nóv. 2024
Breytingareglugerð
453/2023
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.
1. gr.
Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1174 frá 7. júlí 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2023 frá 17. mars 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 479-486.
2. gr.
Við 2. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliðir:
- Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2147 frá 3. desember 2021 um samþykki fyrir flugverndarbúnaði í almenningsflugi með "ESB-stimpli", sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2022 frá 10. júní 2022.
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2022) 4638 frá 7. júlí 2022 um breytingu á framkvæmdarákvörðun C(2015) 8005 að því er varðar tilteknar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 167. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 24. apríl 2023.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.