Fara beint í efnið

Prentað þann 23. des. 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. mars 2023

452/2021

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 35. og 36. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/479 frá 1. apríl 2020 um breytingu á reglugerð nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 459.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/786 frá 15. júní 2020 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 461.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. apríl 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.