Prentað þann 28. des. 2024
Breytingareglugerð
439/2019
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.
1. gr.
53. gr. a reglugerðarnnar fellur brott.
2. gr.
Við 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirtalinn liður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/103 frá 23. janúar 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar nánari útlistun, samræmingu og einföldun sem og styrkingu á tilteknum flugverndarráðstöfunum, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 89/2019 frá 29. mars 2019 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 9. maí 2019, bls. 7.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. maí 2019.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.